VeiðarRækjutroll

Ísfell hefur verið leiðandi í hönnun og uppsetningu á rækjutrollum. Trollin eru sett upp úr besta fáanlega hráefni, hönnuð í samvinnu við skipstjóra og aðlöguð að viðkomandi skipi miðað við vélarstærð og spilbúnað, eins og lengd og þyngd á rockhopperlengju. Rækjutroll frá Ísfelli eru notuð við Nýfundnaland, á Íslandsmiðum, í Barentshafi og við Noreg af skipum frá Íslandi, Rússlandi, Þýskalandi, Noregi, Eistlandi, Lettlandi, Færeyjum og Kanada.


Í rækjuveiðum er lágmarkið fyrir möskvastærð 45 mm í vængjum vörpunnar og miðneti en 36 mm í pokanum. Ísfell býður “Ultra Cross” hnútalausa Dyneema netið frá Net Systems, sem hefur reynst frábærlega í rækjutrollum. Í belginn er 1,1mm 42-50mm möskvi mest notaður. Ávinningur af því að nota svona net er margþættur, hægt er að nota stærra troll og spara samt olíu og netið endist lengur. Í aðra hluti trollanna er allt hráefni frá viðurkenndum framleiðendum sem eru þekktir fyrir gæði.

Einnig bíður Ísfell upp á rækjuskiljur sem aðstoða við a skilja að smáan fisk frá þeim stóra. Hægt er að nálgast fleiri upplýsingar varðandi skiljurnar hér.

AngCOS troll 3300